Aðalréttir

Svínakjötspottréttur

Hráefni

  • 1 kg svínakjöt, skorið í strimla
  • 2 laukar, saxaðir
  • 100 g beikon, skorið í bita
  • olía (til steikingar)
  • 2 msk. karrí
  • 1 msk. paprikuduft
  • 4 dl vatn
  • 1 dós ananasbitar, með safanum (Hálfdós er lítil dós, hér 300 g.)
  • 3 dl rjómi
  • 3 kjötkraftsteningar
  • salt
  • pipar
  • sósujafnari, eftir þörfum (Notaður í lokin.)

Aðferð

  1. Steikið kjötið, laukinn og beikonið í olíu. Bætið karríinu og paprikunni út í og steikið smástund, hellið svo vökvanum yfir: vatni, safanum af ananasinum og rjóma, og myljið kraftteningana út í.
  2. Sjóðið í um 20 mínútur. Bætið þá ananasbitunum út í, kryddið með salti og pipar og þykkið með sósujafnara.

Athugasemdir

  • Gott með hrísgrjónum og fersku salati.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Svínakjötspottréttur
1kg. svínakjöt skor. í strimla 2 laukar - 100gr. bacon - olía 2 msk. karrý - 1 msk. paprika. 4 dl. vatn - 1 hálf dós (300gr) ananasbit + safi 3 dl. rjómi - 3 ten. kjötkraft. salt + pipar + (sósujafnari í rest)
Steikja allt → karry → vökvinn sjóða í ca. 20 min. → ananasbitar + Rest af kryddi + sósujafnari