Smákökur

Rice Krispies-kökur

Hráefni

  • 60 g smjör
  • 5 msk. sýróp
  • 100 g súkkulaði (Oft suðusúkkulaði.)
  • 100 g Rice Krispies

Aðferð

  1. Bræðið smjör, sýróp og súkkulaði saman í potti við vægan hita og hrærið vel.
  2. Takið pottinn af hitanum og blandið Rice Krispies varlega saman við.
  3. Setjið með skeið í lítil pappírsform og látið stífna í kæli.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Rice Krispieskökur
60gr. smjör - 5 msk. sýróp 100gr. súkkul. - 100gr. Rice Krispies