Púðursykurmarengs
Hún merkti uppskriftina með stjörnu
Hráefni
- 9 eggjahvítur
- 375 g púðursykur
- 250 g sykur
- 90 g Rice Krispies
- 1½ tsk. lyftiduft
Aðferð
- Hitið ofninn í 125°C með blæstri. Teiknið tvo stóra botna (um 36 cm x 38 cm) á bökunarpappír á tveimur ofnplötum.
- Þeytið eggjahvíturnar þar til þær freyða og bætið svo púðursykrinum og sykrinum út í smám saman. Þeytið þar til marengsinn er stífur og gljáandi.
- Blandið lyftiduftinu saman við Rice Krispies og blandið því varlega saman við marengsinn með sleikju.
- Skiptið marengsnum á botnana tvo og sléttið úr honum.
- Bakið í um 1½ klukkustund. Látið botnana kólna alveg áður en þeir eru teknir af pappírnum.
Eins og hún skrifaði það

Púðursykurmarengs.
9 eggjahvítur + 375gr púðurs. + 250 sykur +
90gr. Rice Krisp + 1 1/2 tsk. lyftiduft