Púðursykurmarengs með súkkulaðikremi
- Ofnhiti
- 125 °C
- Form
- 36½ cm × 38 cm
Hráefni
Marengsbotnar
- 4 eggjahvítur
- 160 g púðursykur
- 100 g sykur
- 4 dl Rice Krispies (Síðar skrifað með bláu bleki: 4 dl = 40 g, 6 dl = 60 g.)
- ½ tsk. lyftiduft
Súkkulaðikrem
- 4 eggjarauður
- 50 g flórsykur
- 100 g súkkulaði, brætt
- 40 g smjör
Mars-súkkulaðikrem
- 3–4 Mars-súkkulaðistykki, stór
- ca. 50 g smjör (Magn vantar á blaðið; 50 g er tillaga.)
- eggjarauður (Fjöldi ekki gefinn; sjá athugasemd.)
Samsetning
- ¾ l rjómi, þeyttur (½ + ¼ l, samtals ¾ l.)
- 2 Mars-súkkulaðistykki, brytjuð
Aðferð
Marengsbotnar
- Hitið ofninn í 125°C með blæstri. Teiknið tvo botna, um 36½ cm x 38 cm, á bökunarpappír á tveimur ofnplötum.
- Þeytið eggjahvíturnar þar til þær freyða og bætið púðursykrinum og sykrinum út í smám saman. Þeytið þar til marengsinn er stífur og gljáandi.
- Blandið lyftiduftinu saman við Rice Krispies og blandið því varlega saman við marengsinn. Skiptið á botnana tvo og sléttið úr.
- Bakið við 125°C með blæstri í um 1½ klukkustund. Látið botnana kólna alveg.
Súkkulaðikrem
- Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn saman þar til blandan er ljós og þykk.
- Bræðið súkkulaðið og smjörið saman og hrærið út í eggjablönduna.
- Kælið kremið.
Mars-súkkulaðikrem
- Setjið Mars-stykkin í pott með smjörinu og bræðið saman við vægan hita.
- Takið pottinn af hitanum og þeytið eggjarauðurnar mjög vel út í.
- Hellið kreminu yfir tertuna þegar búið er að setja hana saman.
Samsetning
- Þeytið rjómann. Brytjið 2 Mars og blandið út í rjómann. Leggið púðursykurbotnana tvo saman með rjómanum á milli.
- Setjið kremið ofan á (eða bræðið súkkulaði og látið það leka yfir, sjá ábendingu).
Athugasemdir
- Ekki setja krem ofan á tertuna, það verður of þykkt. Betra og fallegra er að bræða súkkulaði og láta það leka yfir.
Aðrar stærðir
1½ uppskrift (6 eggjahvítur)
Marengsbotnar
- 6 eggjahvítur
- 250 g púðursykur
- 150 g sykur
- 6 dl Rice Krispies
- 1 tsk. lyftiduft
Súkkulaðikrem
- 6 eggjarauður
- 75 g flórsykur
- 150 g súkkulaði, brætt
- 60 g smjör
Eins og hún skrifaði það

Púðursykurmarengs. m/súkk. kremi
4 eggjahv. - 160gr. púðursykur
100gr. sykur - 4 dl. 40gr. Rice Krispies - 1/2 tsk.
lyftid.
X 6 eggjahv. - …gr 250gr. púðursykur
150gr. sykur - 60 gr 6 dl. Rice Kr. - 1 tsk. lyftid.
125°c m/blæstri, ca. 1 1/2 klst. 36,5 x 38 cm. x 2 botnar
Krem:
4 rauður (circled: 6 rauður) + 75 + 50 gr. flórsykur > þeytt saman
150 100gr. br. súkkul. + (eða 50) 40gr. smjör hrært útí
kælt
Marssúkkul. ~~Krem~~ krem:
3-4 stór Mars sett í pott m/ca. gr. smjör
br. saman, eggjarauður þeyttar mjög
vel útí, hellt yfir tertuna.
2 púðurs. botnar settir saman
með 1/2 + 1/4 l. Rjóma, brytja 2 Mars
útí Rjómann sem settir eru
á milli. (Ekki láta krem ofaná
tertuna. of þykkt betra, fallegra,
að bræða súkkul. og láta leka)