Smákökur

Mömmukökur

Frá
Ásta á Hömrum
Ofnhiti
180–200 °C

Hráefni

Kökurnar

  • 500 g hveiti
  • 2 tsk. matarsódi
  • 1 egg
  • 1 tsk. engifer
  • 125 g sykur
  • 125 g smjör
  • 250 g sýróp, volgt

Krem

  • 400 g flórsykur
  • 125 g smjör, mjúkt
  • 4 msk. sýróp (Síðar skrifað með bláu bleki: 80 g.)
  • 1 egg
  • 3 tsk. vanillusykur (Síðar skrifað með bláu bleki: 10 g.)

Aðferð

Kökurnar

  1. Hitið smjör, sýróp og sykur saman að suðu.
  2. Kælið blönduna og hrærið svo egginu út í.
  3. Blandið hveiti, matarsóda og engifer saman og hrærið út í.
  4. Kælið deigið yfir nótt.
  5. Hitið ofninn. Fletjið deigið þunnt út og stingið út kringlóttar kökur. Raðið á ofnplötur með bökunarpappír.
  6. Bakið við 200°C (eða 180°C, sjá athugasemd) í um 7–9 mínútur. Látið kökurnar kólna.

Krem

  1. Þeytið allt saman þar til kremið er létt og ljóst.
  2. Leggið tvær kaldar kökur saman með kremi á milli.

Athugasemdir

  • Geymið kökurnar í kæli.

Eins og hún skrifaði það

Síða 1 af 2

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Mömmukökur
(Ásta Hömrum)
500gr. hveiti - 2 tsk. natron - 1 egg 1 tsk. engifer - 125gr. sykur 125gr. smjör - 250gr. sýróp (volgt)
Hita smjör + síróp + sykur að suðu -> kæla -> svo egg svo þurrefnin -> Kæla yfir nótt 180° 200°c í ca. 7-9 min

Síða 2 af 2

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Krem fyrir mömmukökur. ↗
400gr. flórsykur - 125 smjör - 4 msk. 80gr. sýróp 1 egg - 3 tsk. 10gr. Vanillusykur.
þeyta öllu sm. þar til létt og ljóst Geyma kökur í kæli