Meðlæti, sósur og sultur

Majónes

Frá
Heiðar Örn

Hráefni

  • 4 eggjarauður
  • 1 tsk. Dijon-sinnep
  • 2 bollar olía (700 ml samkvæmt uppskriftinni; notið bragðlitla olíu)
  • 2 tsk. edik
  • 2 tsk. sítrónusafi
  • ½ tsk. salt

Aðferð

  1. Hafið öll hráefnin við stofuhita.
  2. Þeytið saman eggjarauður, sinnep, edik, sítrónusafa og salt.
  3. Bætið olíunni út í, fyrst nokkrum dropum í einu, og þeytið stöðugt. Þegar majónesið fer að þykkna má hella olíunni í mjórri bunu. Gott er að nota hrærivél eða töfrasprota.
  4. Smakkið til með salti og sítrónusafa og geymið í kæli.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Majones
(Heiðar Örn)
4eggjar. - 1tsk. Dijon sinnep 2b(700mL.) olía - 2tsk. edik 2tsk. sítr.safi - 1/2 tsk. salt