Smákökur

Loftkökur

Frá
María
Ofnhiti
175 °C

Hráefni

  • 1 kg flórsykur
  • 22 g kakó
  • 3 egg
  • 3 tsk. hjartarsalt

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 175°C og leggið bökunarpappír á ofnplötur.
  2. Hnoðið allt saman í þétt deig.
  3. Setjið deigið í gegnum hakkavél og skerið lengjurnar í um 3 cm búta. Raðið á plöturnar með góðu bili, því kökurnar lyfta sér mikið.
  4. Bakið við 175°C í um 11–13 mínútur.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Loftkökur
(María)
1 kg. flórsykur - 22gr. kakó 3 egg - 3 tsk. hjartasalt.
Allt hnoðað saman 175°c í ca. 11-13 min.