Kökur og tertur

Heimilisfriður

Frá
Hulda
Ofnhiti
180 °C

Hráefni

  • 420 g hveiti
  • 270 g haframjöl
  • 630 g sykur
  • 1 pakki döðlur, saxaðar (Höfundur skildi eftir tóman sviga, líklega til að skrifa inn þyngdina.)
  • 600 g smjör, brætt
  • 3 tsk. matarsódi
  • 3 egg
  • 1 dl mjólk
  • 3 tsk. vanilludropar

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið ofnskúffu eða skúffuform.
  2. Saxið döðlurnar og mýkið þær í heitu, bræddu smjörinu.
  3. Blandið öllu saman.
  4. Setjið deigið í skúffuformið og sléttið úr því.
  5. Bakið við 180°C í 30 mínútur í næstneðstu rim.

Athugasemdir

  • Notið K-ið (flata hrærarann) á hrærivélinni, ekki þeytarann.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Heimilisfriður
(Hulda)
420gr. hveiti — 270gr. haframjöl 630gr. sykur — 1pk( ) döðlur 600gr. br. smjör — 3tsk. natron 3egg — 1dl. mjólk — 3tsk. Vanilludr.
Döðlur mýktar í smjörinu, öllu bl. saman. Sett í skúffumót ?? Bakist í 30 min. 180°c í næst neðstu Rim. (einf. (eða þykktin) á hæðina.)