Aðalréttir

Fiskibollur

Hráefni

  • 2 kg fiskur, roð- og beinlaus (T.d. ýsa eða þorskur.)
  • 3 laukar, stórir
  • 6 egg
  • ½ bolli mjólk (eða rjómi)
  • 400 g hveiti
  • 50 g kartöflumjöl
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 4 tsk. pipar
  • 7 tsk. salt

Aðferð

  1. Hakkið fiskinn og laukinn saman, helst tvisvar, í hakkavél eða matvinnsluvél.
  2. Hrærið saltinu saman við farsið fyrst, svo eggjunum, mjólkinni, hveitinu, kartöflumjölinu, lyftiduftinu og piparnum. Hrærið vel.
  3. Mótið bollur með blautri matskeið og steikið í smjöri og olíu á pönnu við meðalhita í um 4–5 mínútur á hvorri hlið, þar til þær eru gullinbrúnar og steiktar í gegn.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Fiskibollur
2 kg. fiskur 3 stórir laukar (eða 7) egg - 1/2 b. mjólk (Rjómi) …. Hveiti → 4…00 gr 2 msk 50gr.. Kartöflumjöl 3 tsk. lyftiduft 54 tsk. pipar 7 8 tsk. salt