Engiferkökur
- Frá
- Nonni, frændi, bakari
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
- 250 g hveiti
- 250 g púðursykur
- 125 g smjör
- 1 egg
- 1 tsk. kanill
- ½ tsk. lyftiduft
- ½ tsk. matarsódi
- 1½ tsk. engifer
- ¾ tsk. negull
Aðferð
- Hitið ofninn í 200°C og leggið bökunarpappír á ofnplötur.
- Hnoðið allt saman í deig.
- Búið til litlar kúlur og þrýstið aðeins ofan á þær.
- Raðið um 56 kúlum á hverja plötu, 7 x 8.
- Bakið við 200°C í um 12–13 mínútur, næstneðst í ofninum.
Eins og hún skrifaði það

Engiferkökur
(Nonni)
250gr. hveiti - 250gr. púðursyk.
125gr. smjör - 1 egg - 1 tsk. kanill
1/2 tsk. lyftid. - 1/2 tsk. natron
1 1/2 tsk. engifer - 3/4 tsk. negull
Hnoðað, búnar til litlar
kúlur, þrýst aðeins ofan á
200°c í ca. 12-13 min. Næst neðst
ca. 56 á plötu, 7x8