Döðluterta með jarðarberjarjóma
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
Botnar
- 4 egg
- 200 g púðursykur
- 200 g döðlur, saxaðar
- 100 g dökkt súkkulaði, saxað
- 125 g hveiti
- ⅓ tsk. salt
Á milli
- 4 dl rjómi
- 1 dós niðursoðin jarðarber, stór dós
Ofan á
- 150 g dökkt súkkulaði
- 2 msk. smjör
- 2 msk. rjómi
- 1 msk. síróp (ljóst síróp)
- ½ tsk. salt
Aðferð
Botnar
- Hitið ofninn í 180°C með blæstri og smyrjið tvö kringlótt form.
- Saxið döðlurnar og súkkulaðið og blandið 1 tsk. af hveitinu saman við.
- Þeytið egg og púðursykur vel saman.
- Blandið hveitinu varlega saman við með sleif og svo döðlunum, saltinu og súkkulaðinu.
- Skiptið deiginu í formin og bakið í 15–20 mínútur. Látið kólna.
Á milli
- Hellið um 5 msk. af jarðarberjasafanum yfir hvorn botn.
- Hellið jarðarberjunum í sigti og stappið þau gróflega.
- Þeytið rjómann og blandið jarðarberjunum út í.
- Dreifið rjómanum yfir annan botninn og leggið hinn ofan á.
Ofan á
- Setjið allt í pott og bræðið saman við vægan hita.
- Hellið yfir tertuna.
- Geymið kökuna í kæli í minnst 3 klukkustundir áður en hún er borin fram.
Eins og hún skrifaði það

Döðluterta m/jarðab. rjóma.
Botnar:
4 egg - 200gr. púðursykur
200gr. döðlur - 100gr. sax. dökkt súkk.
125gr. hveiti - 1/3 tsk. salt.
180°c blást.
2Ø botnar. sax. döðlur + súkkul.
bl. 1 tsk. hveiti sm. við. þeyta egg
+ púðurs. vel. Bl. hveiti m/sleif
svo döðlur, salt + súkkul. Baka
15-20 min.
Á milli =
4 dl. rjómi - 1 stór dós
jarðaber.
Hella ca. 5 msk. af
jarðab. safa yfir báða botn.
Hella j. berjum í sigti og stappa
gróflega, þeyta rjóma og bl. j. berj
út í síðan dreifa yfir botn
Ofaná =
150gr. dökkt súkkul.
2 msk. smjör - 2 msk. rjómi
1 msk. sýróp - 1/2 tsk. salt.
Bl. öllu
í pott, vægan hita. Hella yfir tertuna
Geyma minnst 3 klst.