Kökur og tertur

Cheerioskaka

Frá
Elsa

Hráefni

  • 1 pakki Cheerios
  • 2 egg
  • 250 g flórsykur
  • 4 msk. kakó
  • 250 g jurtafeiti, brædd (t.d. kókosfeiti eða Palmín)

Aðferð

  1. Bræðið jurtafeitina við vægan hita og látið hana kólna aðeins.
  2. Þeytið egg og flórsykur saman.
  3. Bætið kakóinu út í.
  4. Blandið að lokum bræddu feitinni og Cheerios saman við.
  5. Setjið í kringlótt form eða í muffinsform.
  6. Kælið þar til kakan stífnar.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Cheerioskaka
(Elsa)
1pk. Cheerios — 2egg 250gr. flórsykur — 4msk. kakó 250gr. br. jurtafeiti.
Jurtafeiti br. við vægan hita Egg og flórs. þeytt saman. Kakó bætt út í ⇒ öllu bl. sam. Sett í Ø form eða muffins. Kælt.