Amerískar pönnukökur
- Magn
- Um 8 stykki
Hráefni
- 270 g hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- 4 msk. sykur (um 50 g)
- 270 ml mjólk (Síðar skrifað „+ (300)“ fyrir ofan: má fara upp í 300 ml.)
- 2 egg
- 50–60 g smjör, brætt
Aðferð
- Blandið þurrefnunum saman: hveiti, lyftidufti, salti og sykri.
- Bætið mjólk, eggjum og bræddu smjöri út í og blandið öllu saman.
- Hitið pönnu á hita 4–5 á hellunni.
- Hellið deigi á pönnuna, um eina ausu í hverja köku. Steikið þar til loftbólur koma upp á yfirborðið og snúið þá við og steikið hina hliðina þar til hún er gullin.
Athugasemdir
- Það þarf ekki feiti á pönnuna.
Eins og hún skrifaði það

Ameriskar pönnukökur
270gr. Hveiti — 2tsk. Lyftid.
1tsk. salt — 4msk.(50gr) sykur.
Bl. saman
+ (300) 270 ml. mjólk — 2 egg þarf ekki feiti á pönnuna
50-60gr. br. smjör.
"Öllu bl. saman, hiti 4-5, ca. 8stk.