Smákökur

Vanilluhringir

Ofnhiti
200 °C

Hráefni

  • 250 g hveiti
  • 50 g kartöflumjöl
  • 125 g flórsykur
  • 190 g smjör
  • ½–1 egg
  • 2 tsk. vanilludropar

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C og leggið bökunarpappír á ofnplötur.
  2. Blandið saman hveiti, kartöflumjöli og flórsykri. Myljið smjörið út í og bætið egginu og vanilludropunum við. Hnoðið í slétt deig; notið hálft til eitt egg eftir því hve deigið er þurrt.
  3. Setjið deigið í hakkavél eða smákökusprautu með stjörnuskífu, skerið lengjurnar í um 8 cm búta og mótið hringi. Raðið á plöturnar.
  4. Bakið við 200°C í 7–10 mínútur ofarlega í ofninum.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Vanilluhringir
250gr. hveiti - 50gr. kartöflumjöl 125gr. flórsykur - 190gr. smjör 1/2-1 egg - 2 tsk. Vanilludr.
200°c í 7-10 min. ofarlega í ofninum.