Uppáhaldsréttur sælkerans
Hráefni
- 1 kíví
- 1 granatepli
- ¼ melóna
- 1 búnt blá vínber
- 1 bakki fersk jarðarber
- hnetusúkkulaði, saxað
- 1 staup Grand Marnier (appelsínulíkjör)
- rjómi
Aðferð
- Flysjið kívíinn og skerið í sneiðar.
- Skerið granateplið í tvennt, hreinsið kjarnana (fræin) úr og losið þá í sundur.
- Skerið melónuna í bita og vínberin og jarðarberin í tvennt.
- Takið steinana úr vínberjunum.
- Blandið ávöxtunum varlega saman og hellið Grand Marnier yfir.
- Kælið vel.
- Stráið söxuðu súkkulaðinu yfir.
- Berið fram með þeyttum rjóma.
Eins og hún skrifaði það

Uppáhaldsréttur sælkerans.
1 Kiwi — 1 Granata epli (Grenadin)
1/4 melóna — 1 klasi blá vínber —
1 bakki fersk jarðarber — hnetusúkkul.
1 staup Grand Marnier — Rjómi.
Kiwi flysj. og sneiddur. Granada
skorið í tvennt, kjarninn hreins.
úr og eplið bitað. Melón. bituð og
vínber og jarðab. í tvennt. Taka
steina úr vínb. Bl. varl. saman
og Grand M. hellt yfir. Kælt vel.
Strá súkkul. yfir. Borið fram
með þeyttum rjóma.