Tómatsúpa
- Frá
- Dagný
Hráefni
- tómatar, afhýddir
- kjötkraftur
- tómatsósa
- rjómaostur
- grænt laufkrydd (spurningarmerkið er höfundar)
- hvítlaukur
- núðlur
- rækjur (má sleppa)
- rjómi
Aðferð
- Mýkið saxaðan hvítlauk í smá olíu í potti. Bætið afhýddum tómötum (t.d. 2 dósum af niðursoðnum, eða um 1 kg ferskum), um 1 l af kjötkrafti og 2–3 msk. af tómatsósu út í og sjóðið í 15–20 mínútur.
- Maukið súpuna með töfrasprota. Hrærið um 100 g af rjómaosti og 2–3 dl af rjóma saman við og kryddið með grænu laufkryddi, salti og pipar.
- Bætið núðlunum út í og sjóðið þar til þær eru mjúkar. Setjið rækjurnar út í rétt í lokin, ef þær eru notaðar, og hitið aðeins í gegn.
Eins og hún skrifaði það

Tómatsúpa
(Dagný)
Tómatar afhýddir - kjötkraft
tómatsósa - Rjómaostur
grænt laufkrydd? Hvítlauk.
núðlur - (Rækjur) - Rjómi