Tómatsalat
- Heimild
- Dagblaðsúrklippa (nafn blaðsins kemur ekki fram á úrklippunni)
Hráefni
- 1 rauðlaukur, lítill, skorinn í þunnar sneiðar
- ½ tsk. súmak
- 1 msk. sítrónusafi, nýkreistur
- 450 g kokteiltómatar
- ca. ⅛ tsk. svartur pipar, nýmalaður
- ca. ½ tsk. sjávarsalt
- 1–2 msk. basilíkulauf, skorin
Aðferð
- Blandið lauksneiðunum saman við súmakið og sítrónusafann í skál og leyfið þeim að mýkjast í 5–10 mínútur.
- Helmingið tómatana og veltið þeim saman við laukinn ásamt basilíkunni.
- Saltið og piprið eftir smekk og geymið salatið þar til það er borið fram.