Þorskhnakkar með tómötum, ólífum og mozzarella
- Heimild
- Líklega úr þætti á DR1 (danska sjónvarpinu), samkvæmt athugasemd í horni síðunnar
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
- 700 g þorskhnakkar
- salt, eftir smekk
- pipar, eftir smekk
- olía, til steikingar
- 2 hvítlauksgeirar
- ½ tsk. þurrkað rautt chilli
- kartöflur, skornar í bita
- 200 g litlir tómatar (kirsuberjatómatar)
- 1 dl hvítvín
- mozzarellakúlur
- svartar ólífur, heilar
- 1 sítróna, aðeins börkurinn
- fersk basilíka
Aðferð
- Hitið ofninn í 200°C.
- Steikið kartöflubitana í olíu á pönnu sem má fara í ofn þar til þeir eru gullnir og nánast meyrir.
- Bætið svo hvítlauknum og chilli út í og steikið stutta stund.
- Bætið svo tómötunum út í.
- Saltið og piprið fiskinn, setjið hann á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur á báðum hliðum.
- Hrærið varlega í grænmetinu í kringum fiskinn.
- Hellið hvítvíninu yfir og dreifið svo ólífunum og mozzarellakúlunum yfir.
- Bakið í ofninum í um 20 mínútur.
- Rífið sítrónubörkinn yfir og stráið basilíku yfir áður en borið er fram.
Eins og hún skrifaði það

DRI 2 vikur
Ungforgóðum
700 gr. þorskhn.
salt + pipar
olía
2 hv. geirar
1/2 tsk. þurrk. rautt chilli
Kartöflur
200 gr. litlir Tóm.
1 dl. hvítvín
mozarellakúlur
sv. heilar ólífur
Börkur af 1 sítr.
Ferskt. Basil
Rífa sítrónu
+ Basil
yfir
200°c
Kartöflur steikja, svo lauk + chilli…
svo tóm. svo fisk salta og pipra
steikja nokkrar min. báðum megin
hræra í græn m. Hella hvítvíni
yfir svo ólífur + mozarella. Baka í ofni 20…