Súrsaðir grænir tómatar
- Frá
- Þura
Hráefni
- 1 kg grænir tómatar, litlir, heilir
- salt (í saltvatn)
- ½ kg sykur
- ½ l edik
- 6 negulnaglar
- 1 kanilstöng
Aðferð
- Pikkið tómatana (stingið í þá með gaffli eða prjóni) og leggið þá í bleyti í saltvatn yfir nótt.
- Hellið saltvatninu af og skolið tómatana.
- Sjóðið edik, sykur og krydd saman þar til sykurinn er uppleystur.
- Setjið tómatana út í og sjóðið í 5 mínútur.
- Setjið tómatana í hreinar, heitar krukkur, hellið leginum yfir svo fljóti yfir og lokið.
Eins og hún skrifaði það

Súrsaðir grænir tóm
(Þura
1 kg. tóm. lagðir í bleyti (salt)
yfir nótt, og pikkaðir.
1/2 kg. sykur — 1/2 L. edik —
6 negulnaglar — 1 kanilstöng
Edik, sykur og krydd soðið,
Tóm soðnir í 5 mín. Sett á
glös og lokað.