Smákökur

Spari-vanilluhringir

Frá
Húsfreyjan
Ofnhiti
200 °C

Hráefni

  • 60 g möndluhveiti
  • 300 g hveiti
  • 150 g flórsykur
  • smá salt
  • 1 egg, lítið
  • ½ tsk. hjartarsalt
  • 1 vanillustöng
  • 225 g smjör, kalt

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C og leggið bökunarpappír á ofnplötur.
  2. Kljúfið vanillustöngina, skafið fræin úr og blandið þeim saman við flórsykurinn.
  3. Blandið svo öllum þurrefnunum saman, myljið kalda smjörið út í og bætið egginu við. Hnoðið í slétt deig.
  4. Setjið deigið í hakkavél eða smákökusprautu með stjörnuskífu, skerið lengjurnar í um 8 cm búta og mótið hringi. Raðið á plöturnar.
  5. Bakið við 200°C í um 7–8 mínútur, þar til hringirnir eru ljósgylltir.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Vanilluhringir spari
(Húsfreyjan)
60gr. möndluhv. - 300gr. hveiti 150 gr. flórsykur - smá salt - 1 lítið egg 1/2 tsk. hjartasalt - 1 vanillustöng 225gr. kalt smjör
Vanillust. skafin og bl. saman við sykurinn svo allt mulið saman + smjör + egg. 200°c í ca. 7-8 min.