Smákökur

Sörur

Frá
Dagný
Ofnhiti
180 °C

Hráefni

Botnar

  • 3 eggjahvítur
  • 3½ dl flórsykur
  • 200 g möndlumjöl

Krem

  • 1½ dl sykur
  • 1½ dl vatn
  • 5 eggjarauður
  • 300 g smjör, mjúkt
  • 40 g kakó (Upphaflega 3–4 msk., breytt í 40 g.)
  • 1 tsk. vanillusykur
  • 50 g núggat (má sleppa) (Höfundur setti tvö spurningarmerki við núggatið.)
  • 2–3 tsk. skyndikaffiduft

Hjúpur

  • gott súkkulaði (t.d. suðusúkkulaði)
  • smá rjómi

Aðferð

Botnar

  1. Þeytið eggjahvíturnar vel og bætið svo flórsykrinum út í.
  2. Blandið möndlumjölinu varlega saman við.
  3. Setjið deigið með teskeið á plötu klædda bökunarpappír, kökur á stærð við 100 kr. pening, því þær stækka talsvert. Mest 5×6 kökur á plötu.
  4. Bakið við 180°C í 11–12 mínútur.
  5. Látið kökurnar kólna aðeins á plötunni, en ekki alveg, áður en þær eru teknar af.

Krem

  1. Sjóðið sykur og vatn saman í 8–10 mínútur þar til úr verður síróp.
  2. Þeytið eggjarauðurnar vel og hellið sírópinu í mjórri bunu út í þær á meðan þeytt er. Þeytið vel.
  3. Þeytið síðan mjúka smjörið vel út í, ásamt kakói, vanillusykri, núggati (ef notað) og kaffidufti. Þeytið allt vel.
  4. Smakkið til.
  5. Setjið kremið með skeið á sléttu hliðina á kökunum og kælið.
  6. Hjúpið kremhliðina með góðu bræddu súkkulaði með smá rjóma.

Athugasemdir

  • Ef gera á tvöfalda uppskrift er ekki gott að gera báðar í einu.
  • Við titilinn stendur „(210)“, líklega fjöldi kakna.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Sörur (210)
(Dagný)
3 eggjahv. - 3 1/2 dl. flórsykur 200 gr. möndlumjöl.
þeyta vel hvítur svo flórsykur út í bl. möndlumj. varl saman við ca. 100kr stækka talsvert. (ef gera á 2 uppskr. ekki gott að gera báðar í einu) 5x6 hám. á plötuna, láta aðeins kólna. ekki alveg. 180°C í 11-12 mín.
Krem: 1 1/2 dl. sykur + … 1 1/2 dl. vatn sjóða saman í 8-10 mín. í síróp þeyta vel 5 eggjarauður og hella sírópi í mjórri bunu út í rauðurnar þeyta vel síðan er 300 gr. mjúkt smjör þeytt vel út í og 3-4 40 gr + 1 tsk. Vansyk msk. kakó + nougat?? 50 gr. nougat og 2-3 tsk. Kaffiduft. allt þeytt vel Smakka til. Kremið sett á kökurnar með skeið og kalt. Hjúpað með góðu súkkul. m/smá Rjóma