Smákökur

Smákökur með súkkulaðibitum

Frá
Heiðar Örn
Ofnhiti
180 °C

Hráefni

  • 2¼ bollar hveiti („(375)“ í hring við hliðina; sjá athugasemd.)
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 225 g smjör, mjúkt
  • 2 egg
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. vanilludropar
  • ¾ bolli sykur (160 g)
  • ¾ bolli ljós púðursykur (160 g)
  • 300 g 70% súkkulaði, saxað (Breytt úr 2 bollum.)
  • 1 bolli heslihnetur, saxaðar (Svigarnir fyrir grammafjöldann eru auðir.)

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C og klæðið plötur með bökunarpappír.
  2. Hrærið mjúkt smjör, sykur og púðursykur saman þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og svo vanilludropunum.
  3. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman og hrærið út í. Blandið söxuðu súkkulaðinu og heslihnetunum saman við.
  4. Setjið kúfaða matskeið af deigi fyrir hverja köku á plöturnar, með góðu bili á milli.
  5. Bakið í 15 mínútur.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Smákökur m/súkkul. bitum
(H.Ö.)
2 1/4 b 375 hveiti - 1 tsk. lyftid. 225gr. smjör - 2 egg - 1 tsk. salt 1 tsk. vanilludr. - 3/4 b. (160) sykur. 3/4 b. (160) ljós púður - 300gr 2b. súkkul. 70% - 1 b. ( ) heslihnetur
180°C í 15 min. Kúfuð matskeið.