Kökur og tertur

Slummuterta

Frá
Ásthildur

Hráefni

Krem

  • 150–200 g súkkulaði
  • 3 msk. vatn, heitt
  • 3 eggjarauður
  • 2 msk. flórsykur
  • ca. 1 dl rjómi, þeyttur

Samsetning

  • hvítur svampbotn
  • hvítur marengsbotn
  • ½ l rjómi, þeyttur

Aðferð

Krem

  1. Setjið súkkulaðið og heita vatnið í pott og bræðið við vægan hita.
  2. Látið kólna aðeins.
  3. Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn saman við súkkulaðið.
  4. Blandið síðast um 1 dl af þeyttum rjóma saman við.

Samsetning

  1. Botnarnir eru settir saman með kremi og rjóma á eftirfarandi hátt.
  2. Smyrjið hluta af kreminu á svampbotninn.
  3. Setjið svo þeyttan rjóma ofan á og marengsbotninn þar ofan á.
  4. Smyrjið restinni af þeytta rjómanum ofan á marengsbotninn.
  5. Hellið að lokum restinni af kreminu yfir.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Slummuterta
(Ásthildur)
Hvítur botn + hvítur marengsb. settir saman með kremi og Rjóma
Krem: 150-200gr. súkkul. ) Sett í pott 3 msk. heitt vatn ) og brætt
Kælt. Tvær þrjár eggjarauður + 2 msk. flórs. þeyttar saman við súkkul. síðast ca. 1 dl. þ. Rjómi. Krem smurt á svampbotn. svo þeyttur Rjómi -> marengsbotn, rest af þeytta Rjómanum (1/2 l.) svo rest af kremi hellt yfir.