Meðlæti, sósur og sultur

Skyrsósa

Hráefni

  • ½ agúrka, rifin
  • 1 tsk. salt (Til að blanda við agúrkuna.)
  • 1 dós skyr, ósætt (Ein skyrdós.)
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaður
  • 10 myntublöð, söxuð
  • salt, eftir smekk
  • pipar, eftir smekk

Aðferð

  1. Blandið rifinni agúrkunni og 1 tsk. af salti saman og látið standa í nokkrar mínútur. Kreistið svo vökvann úr agúrkunni.
  2. Hrærið agúrkuna saman við skyrið, hvítlaukinn og myntuna og kryddið með salti og pipar.
  3. Látið standa í 1 klst. áður en sósan er borin fram.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Skyrsósa.
1/2 Rif agúrka + 1 tsk. salt > Bl. sm 1 dós ósætt skyr - 2 hvítlauksg. 10 blöð mynta. Salt + pipar
standa í 1 klst. áður en bor.