Skonsur
Hráefni
- 500 g hveiti
- 5 tsk. lyftiduft (um 24 g)
- 1½ tsk. salt
- 4 egg
- 100 g sykur
- 6 dl mjólk
Aðferð
- Blandið hveiti, lyftidufti, salti og sykri saman í skál.
- Pískið eggin og mjólkina saman og hrærið út í þurrefnin þar til deigið er slétt og frekar þykkt.
- Hitið pönnu á hita 8 á hellunni.
- Hellið deiginu á pönnuna með stóru ausunni, einni ausu í hverja skonsu.
- Steikið þar til loftbólur koma í yfirborðið og kantarnir stífna, snúið þá við og steikið hina hliðina þar til hún er ljósbrún.
Aðrar stærðir
1½ uppskrift
- 750 g hveiti
- 36 g lyftiduft
- 2 tsk. salt
- 6 egg
- 150 g sykur
- 9 dl mjólk
Eins og hún skrifaði það

Skonsur
500gr. 750 Hveiti - 5tsk. 36 (24gr) lyftiduft
1 1/2 tsk. +2 10gr salt - 4egg 6 - 100gr. 150 sykur
6dl. 9dl. mjólk
Hiti 8 næst stærsta ausan; stóra