Aðalréttir

Shepherd's pie

Hún merkti uppskriftina með stjörnu

Ofnhiti
200 °C

Hráefni

Kjötið

  • 1½ kg lambahakk
  • 3 laukar, stórir, saxaðir
  • 5 gulrætur, saxaðar
  • 5 sellerístilkar, saxaðir
  • 4 hvítlauksgeirar, saxaður
  • 4 msk. hveiti
  • 1 dós tómatpúrra
  • 500 ml nautasoð
  • 6–7 nautakraftsteningar
  • 80 ml Worcestershire-sósa
  • salt, ef þarf
  • 220 ml rauðvín
  • 5 tsk. timían, þurrkað
  • 4 tsk. rósmarín, þurrkað
  • 3 tsk. svartur pipar
  • grænar baunir, frosnar

Kartöflumús

  • kartöflur
  • mjólk
  • smjör
  • pipar
  • salt
  • smá sykur
  • cheddar- eða parmesanostur, rifinn

Aðferð

Kjötið

  1. Steikið hakkið vel á stórri pönnu eða í potti ásamt lauk, gulrótum, sellerí og hvítlauk. Hrærið hveitinu og tómatpúrrunni saman við og steikið áfram í smástund.
  2. Hellið soðinu, rauðvíninu og Worcestershire-sósunni út í, myljið kraftteningana saman við og kryddið með timíani, rósmaríni og pipar. Bætið frosnu baununum út í.
  3. Látið allt malla í um 20 mínútur. Smakkið til og saltið ef þarf.

Kartöflumús

  1. Sjóðið kartöflurnar, flysjið og stappið með mjólk og smjöri. Kryddið með pipar, salti og smá sykri.
  1. Setjið kjötið í eldfast mót.
  2. Jafnið kartöflumúsinni yfir og stráið rifnum osti yfir.
  3. Bakið við 200°C í um 30 mínútur eða lengur, þar til yfirborðið er gullinbrúnt.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Sheppards pie.
★
1.5kg. lambahakk - 3 stórir laukar 5 gulrætur - 5 selleystilkar 4 hvítlauksrif + 4 msk. hveiti og 1 dós Tómatpaste → steikja vel 500ml. Beef broth + 6-7 teningar beef 80 ml. Worsauce - (Salt ef þarf.) 420 ml Rauðvín - 5 tsk. Thyme 4 tsk. Rosemary - 3 tsk sv. pipar Frosnar baunir. Láta allt malla í ca. 20 min.
Kart. mús: Kartöflur - mjólk smjör - Pipar + salt (smá sykur) Cheddar eða parmesanost Rifin
Allt sett í eldfast mót. Kartöflumúsin jöfnuð yfir 200°c í ca. 30 min. +