Sérríbúðingur
- Frá
- Gunna Sig
Hráefni
- 4 egg
- 200 g sykur
- 2 dl sérrí
- 10 kokteilber
- 70 g súkkulaði
- 9 matarlímsblöð
- 6 dl rjómi, þeyttur
Aðferð
- Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í 5–10 mínútur.
- Skiljið eggin. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn þar til blandan er ljós og þykk. Stífþeytið hvíturnar sér.
- Hitið helminginn af sérríinu, kreistið vatnið úr matarlíminu og bræðið það í heitu sérríinu. Bætið afganginum af sérríinu út í og hellið í mjórri bunu út í eggjarauðublönduna á meðan hrært er.
- Þegar blandan fer að þykkna er þeytta rjómanum blandað varlega saman við og síðan eggjahvítunum.
- Hellið í skál og kælið í að minnsta kosti 3–4 klukkustundir, þar til búðingurinn hefur stífnað.
- Skreytið með kokteilberjum og söxuðu eða rifnu súkkulaði.
Eins og hún skrifaði það

Serrýbúðingur
(Gunna Sig)
4 egg — 200 gr. sykur — 2 dl. serrý
10 koktailber — 70 gr. súkkul.
9 blöð matarlím — 6 dl. þeyttur
Rjómi