Aðalréttir

Saltað lambakjöt

Hráefni

  • 1 kg lambakjöt (T.d. súpukjöt eða læri í bitum.)
  • 24 g salt
  • 10 g sykur

Aðferð

  1. Blandið saltinu og sykrinum saman og nuddið blöndunni vel á allt kjötið.
  2. Setjið kjötið ásamt öllu saltinu í lokaðan poka eða ílát.
  3. Geymið í ísskáp í viku og snúið pokanum öðru hverju.
  4. Sjóðið kjötið í vatni í um 1–1½ klst., þar til það er meyrt, eins og hefðbundið saltkjöt.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Saltað lambakjöt
1kg. kjöt - 24gr. salt - 10gr. sykur
Vika í ísskáp.