Kökur og tertur

Sælkeraskúffan

Frá
Vera Sif og Elsa
Ofnhiti
175 °C
Form
25 cm

Hráefni

Botninn

  • 4–5 msk. smjör
  • 100 g suðusúkkulaði
  • 3 egg
  • 3 dl sykur
  • 1½ dl hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. vanilludropar

Karamellusósan

  • 4 msk. smjör
  • 1 dl púðursykur
  • 2 msk. rjómi
  • 1½ dl pekanhnetur, gróft saxaðar
  • 100 g Siríus Konsum-súkkulaði, kurlað (suðusúkkulaði)

Aðferð

Botninn

  1. Hitið ofninn í 175°C og klæðið ferkantað form, um 25 cm, með bökunarpappír.
  2. Bræðið súkkulaði og smjör saman.
  3. Þeytið eggin í þétta froðu, bætið sykrinum út í og hrærið vel.
  4. Bætið svo þurrefnunum (hveiti og salti) út í og loks bræddu súkkulaðinu og vanillunni.
  5. Hellið í formið og bakið við 175°C í 15 mínútur.

Karamellusósan

  1. Hitið smjör og púðursykur að suðu og sjóðið í 1 mínútu, hrærið stöðugt í.
  2. Takið pottinn af hellunni og hrærið rjómanum út í, smá í einu.
  3. Stráið gróft söxuðum pekanhnetum yfir hálfbakaðan botninn og hellið sósunni yfir.
  4. Bakið í 15 mínútur í viðbót.
  5. Stráið kurlaða súkkulaðinu yfir heita kökuna og skerið hana svo í bita.

Athugasemdir

  • Gott er að geyma kökuna í kæli.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Sælkeraskúffan
(Vera Sif / Elsa)
4-5 msk. smjör - 100gr. suðusúkkul. 3 egg - 3 dl. sykur - 1 1/2 dl. hveiti 1 tsk. salt - 1 tsk. vanilludr.
Bræða súkkul + smjör, þeyta egg í þétta froðu → Sykur útí hræra vel, svo þurrefnin → br. súkkul. + Vanilla. Hella í ferk. form ca. 25cm 175°C í 15 min.
Karamellusósan: 4 msk. smjör - 1 dl. púðursykur 2 msk. rjómi - 1(eða 2) dl Pekanhnetur 100 gr. kurl. síríus konsum
Hita smjör + sykur að suðu. Hita í 1 min hræra Stöðugt í. Taka af hellu, bæta Smá → Rjóminn hrærður útí. Strá hnetum gróft sax. yfir hálfbak. botninn hella sósunni yfir. Baka í 15 min í viðbót. Strá súkkul yfir heita kökuna og skera svo í bita. Gott að geyma í kæli