Rúgbrauð úr súrdeigi
Hún merkti uppskriftina með hjarta
- Magn
- 2 brauð
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
Súrdeig
- 100 g rúgmjöl
- 150 g súrmjólk
- ½ tsk. salt
Brauðið
- 50 g ferskt ger (eða um 17 g þurrger)
- ½ l Malt, volgt (Egils Malt)
- 3 tsk. salt
- ½ kg rúgmjöl
- 300 g hveiti
Aðferð
Súrdeig
- Blandið saman og geymið á eldhúsborðinu í 2 sólarhringa.
Brauðið
- Hrærið súrdeigið út í volgt maltið, síðan gerið og loks öll þurrefnin.
- Látið hefast í 1 klukkustund.
- Hnoðið og mótið 2 brauð.
- Setjið brauðin saman í ferkantað form og penslið olíu á milli brauðanna.
- Látið hefast í að minnsta kosti 45 mínútur.
- Stingið í yfirborðið með gaffli og penslið svo með volgu vatni.
- Bakið við 200°C í um 1¼ klukkustund, á næstneðstu grind í ofninum.
- Breiðið klút yfir brauðin á meðan þau kólna svo skorpan verði ekki eins þykk og hörð.
Eins og hún skrifaði það

♥ Rúgbrauð úr súrdeigi (2 stk.)
Súrdeig:
100 gr. Rúgmj - 150 gr. súrmjólk
1/2 tsk. salt:
bl. saman, geymt á
borði í 2 sólarhringa.
50 gr. ger - 1/2 L. Malt - 3 tsk. salt
1/2 kg. Rúgmjöl - 300 gr. hveiti
Hræra súrd. út í volgu Malti →
ger → allt þurrefni. Hefast í
1 klst. Hnoða, búa til 2 brauð
Sett í ferk. mót, pensla á milli
brauðanna með olíu, hefast í 45 min +
Stinga yfirborðið m/gaffli og
pensla svo með volgu vatni.
200°c í ca. 1 1/4 klst. næst neðst.
Hylja með klút á meðan
kólnar kólnar svo skorpan verði
ekki eins þykk og hörð