Meðlæti, sósur og sultur

Relish

Hráefni

Grænmetið

  • 10 paprikur, fræhreinsaðar, hakkaðar
  • 10 laukar, hakkaðir
  • 3 agúrkur, hakkaðar
  • 1 kg hvítkál, hakkað
  • ¼ bolli salt

Lögur

  • 3 bollar edik („ediksýra (óbl)“ á síðunni; notið venjulegt edik, um 6%, ekki sterka ediksýru)
  • ½ bolli vatn
  • 4 bollar sykur
  • 2 msk. sinnepsfræ
  • 2 msk. sellerýflögur
  • ½ tsk. túrmerik

Aðferð

Grænmetið

  1. Hakkið allt grænmetið, t.d. í hakkavél eða matvinnsluvél.
  2. Stráið ¼ bolla af salti yfir, blandið og látið standa yfir nótt.
  3. Daginn eftir: hellið grænmetinu í sigti, skolið það og látið renna vel af því.

Lögur

  1. Sjóðið allt sem fer í löginn saman í stórum potti.
  2. Bætið grænmetinu út í og sjóðið í um 5 mínútur.
  3. Setjið heitt í hrein, heit glös og lokið strax.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Relish
10papr - 10 laukar - 3 agúrk 1kg. hvítkál → allt hakkað
Hellt yfir 1/4 b salt, látið liggja yfir nótt
Lögur: Lögur: 3b. ediksýra ((eða ábl)) 1/2 b. vatn - 4b sykur 2msk. sinnepsfræ 2 msk. sellerýflögur 1/2 tsk. Turmerik
Allur lögur soðin, allt hráefni soðið í ca. 5min Sett á glös → lokað