Rækjuréttur (kaldur)
- Frá
- Vallý
Hráefni
- 400 g majónes
- 1 dós sýrður rjómi (ein dós (um 180 g))
- 1 dós ananaskurl, lítil dós, safanum hellt af
- ½ paprika, smátt skorin
- 2 tómatar, smátt skornir
- ½ agúrka, smátt skorin
- ¼ púrrulaukur, smátt saxaður
- 500 g rækjur, afþíddar og þerraðar
- 1 formbrauð, skorpulaust, rifið niður
Aðferð
- Rífið brauðið niður og setjið það í botninn á fati eða skál.
- Blandið öllu hinu saman og hellið yfir brauðið.
- Kælið í ísskáp í 2–3 klukkustundir svo brauðið dragi í sig sósuna áður en rétturinn er borinn fram.
Eins og hún skrifaði það

Rækjuréttur (kaldur)
(Vallý)
400 gr. majó — 1 d. sýrð. Rjómi
1 lítil dós ananaskurl — 1/2. paprika
2 tómatar — 1/2 agúrka — 1/4 púrra
500 gr. Rækja — 1 formbrauð
Brauðið sett niðurrifið í botn
á móti (skál) öllu hinu sullað
saman og hellt yfir.