Rækjuréttur Dagnýjar
- Frá
- Dagný
Hráefni
Rétturinn
- rækjur eða humar, soðin og pilluð (Humar á Íslandi er leturhumar.)
- 1 melóna
- smá grænt (t.d. kryddjurtir eða salatblöð), til skrauts (má sleppa)
Sósan
- 2 lime (límónur), börkurinn rifinn og safinn kreistur
- 1 rautt chili, stórt
- ½ dl ólífuolía, ljós
- 2 msk. fljótandi hunang
- 2 msk. hvítvínsedik (Strikið er endurtekningarmerki fyrir 'msk.'.)
- salt, eftir smekk
- pipar, eftir smekk
Aðferð
Sósan
- Rífið limebörkinn í skál.
- Kreistið síðan safann úr limeinu og blandið honum og öllu hinu (nema berkinum) saman í matvinnsluvél.
- Skerið melónuna í bita.
- Hafið smá grænt með til skrauts.
- Setjið rækjurnar og melónuna á disk og hellið sósunni yfir.
- Stráið að lokum limeberkinum yfir.
Athugasemdir
- Gott sem eitt af meðlætinu með silungi eða laxi, ásamt salati og blönduðum hrísgrjónum.
Eins og hún skrifaði það

Dagný
Rækjuréttur.
Rækjur eða humar. + 1 melóna
2 Lime safinn - 1 Rautt Chili (stórt)
1/2 dl. ólífuolía (ljós).
2 msk. fljótandi hunang.
2 - hvítvínsedik.
Salt og pipar
Rífa limeberkinum í skál og
kreista síðan safann úr og bl.
öllu (nema berk.) í matvinnsluvél.
Skera melónuna í bita Smá
grænt? með til að punta. Setja
Rækjur á disk og mel. hella sósu
yfir. strá síðan limeberki yfir
Gott að hafa þetta með silungi
eða laxi sem eitt meðlætið,
salat og blönduð hrísgrjón