Rabarbarakaka með marsípani
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
- 200 g smjör, mjúkt
- 200 g sykur
- 200 g hveiti
- 150 g marsípan, rifið
- 3 egg
- 2 tsk. lyftiduft (Á síðunni stendur „ger“; hér lesið sem lyftiduft (sjá athugasemd).)
- 1 dl mjólk
- 2 rabarbaraleggir, góðir, skornir í bita
Aðferð
- Hitið ofninn í 200°C og smyrjið eldfast mót, um 20 cm x 30 cm.
- Blandið öllu saman nema rabarbaranum og hrærið vel.
- Setjið deigið í eldfasta mótið.
- Skerið rabarbarann í bita og stingið þeim ofan í deigið.
- Bakið við 200°C þar til kakan er ljósbrún, um 30–40 mínútur.
Athugasemdir
- Mjög góð.
Eins og hún skrifaði það

Rabarbarakaka m/marsipani
(mjög góð)
200gr. smjör - 200gr. sykur - 200gr. hveiti
150gr. Rif. marsipan - 3 egg - 2 tsk. ger
1 dl mjólk - 2 góðir leggir Rabarb.
"Öllu bl. saman og hrært nema
Rabarb. Sett í eldfast mót.
Rabarb. stungið í deigið.
Baka 200°c, þar til ljósbrúnn.