Aðalréttir

Pottréttur

Frá
Dóra Karls

Hráefni

  • ½ kg lambakjöt, skorið í bita
  • 2 eggjarauður
  • 5 msk. matarolía
  • 2 tsk. karrí
  • 1 msk. kjötkraftur
  • 1 tsk. Aromat (Aromat-krydd frá Knorr.)
  • 1½ msk. sykur
  • 1 tsk. salt
  • 2 tsk. sósulitur (Brúnn litur í sósur.)
  • 2 msk. Worcestershire-sósa
  • 1 msk. sojasósa
  • 1 msk. kartöflumjöl
  • 1 dl mjólk
  • rjómi, eftir smekk

Aðferð

  1. Skerið kjötið í munnbita.
  2. Hrærið eggjarauðum, olíu, kryddi, kjötkrafti, sósum, kartöflumjöli og mjólk saman í skál og veltið kjötinu upp úr leginum.
  3. Breiðið yfir skálina og geymið í kæli í hálfan sólarhring.
  4. Færið allt í pott og látið malla í um 20 mínútur, eða þar til kjötið er meyrt. Bætið við smá vatni ef þarf.
  5. Hrærið rjóma út í í lokin eftir smekk.