Partíkjötbollur
- Frá
- Edda
- Magn
- Um 60 bollur
Hráefni
Bollurnar
- ½ kg nautahakk
- 1 egg
- ¼ bolli franskbrauð, rifið
- 1 tsk. salt
- 1 laukur, lítill, rifinn
- ½ bolli hrísgrjón, soðin
- 2 tsk. púðursykur
- 1 tsk. sítrónusafi
- ½ tsk. pipar
- ½ tsk. hvítlaukssalt
Súrsæt sósa
- 1 flaska tómatsósa, stór
- 1 tsk. sítrónusafi
- 1 krukka vínberjahlaup, lítil (Eða kívíhlaup.)
- 2 dl rúsínur, saxaðar
- 1 tsk. hvítlaukur, pressaður
- 1 laukur, lítill, smásaxaður
- 1 tsk. salt
- 1 msk. Worcestershire-sósa
- ½ tsk. pipar
- 1 tsk. engiferduft
- 2 msk. sojasósa
Aðferð
Bollurnar
- Blandið öllu saman.
- Mótið litlar bollur og steikið þær á pönnu í smá olíu eða smjöri þar til þær eru brúnaðar og steiktar í gegn.
Súrsæt sósa
- Hrærið öllu saman í potti og látið malla í um 20 mínútur.
- Setjið bollurnar út í sósuna og hitið vel í gegn.
- Berið fram heitt.
Athugasemdir
- Mjög gott.
- Betra er að búa sósuna til daginn áður, þá verður hún bragðmeiri.
Eins og hún skrifaði það

(mjög gott)
(Edda)
Partikjötbollur (ca 60 stk)
1/2 kg. nautahakk. - 1 egg -
1/4 b. Rifið franskbr. - 1 tsk. salt -
1 lítill rifinn laukur - 1/2 b. soð. hrísgrj.
2 tsk. púðursyk. - 1 tsk. sítr. safi.
1/2 tsk. pipar - 1/2 tsk. hvítl. salt.
Búnar til litlar bollur og
steiktar á pönnu.
Súrsæt sósa:
1 stór flaska tómatsósa - 1 tsk. sítr.safi
1 lítil dós vínberjahlaup (Kiwi hlaup)
2 dl. hakk. rúsínur - 1 tsk. hvítlauksrif.
1 lítill laukur. smásax. - 1 tsk. salt.
Worcestershiresósa 1 msk. - 1/2 tsk. pipar.
1 tsk. engiferd. - 2 msk. sojasósa.
Hræra öllu sm. í pott og
láta malla í ca. 20 min. Betra
að búa til daginn áður,
sósan verður bragðmeiri.
Borin fram heit.