Aðalréttir

Osso buco

Heimild
NOMU (www.nomu.co.za), prentað 13. nóvember 2016

Hráefni

Kjötrétturinn

  • ¼ bolli jómfrúarólífuolía (NOMU er suðurafrískt vörumerki.)
  • 12 litlir nautaskankar (ossobucobitar)
  • sjávarsalt, eftir smekk
  • hveiti, til að velta upp úr
  • 2 skalottlaukar (eða 1 stór laukur), þunnt sneiddir
  • 1 msk. kryddblanda fyrir nautakjöt (Á útprentinu er NOMU Beef-, Roast- eða One for All-kryddblanda.)
  • 1 gulrót, í teningum
  • 1 sellerístilkur, í teningum
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaður
  • 1 bolli hvítvín
  • 1 dós maukaðir tómatar, lífrænir (400 g dós.)
  • 1 msk. tómatmauk (tómatpúrra)
  • 2 msk. nautakraftur (fljótandi)
  • 1 l heitt vatn, kraftinum hrært út í
  • 2 greinar rósmarín
  • svartur pipar, eftir smekk

Gremolata

  • 1 sítróna, lífræn, aðeins rifinn börkurinn
  • ¼ bolli steinselja, söxuð
  • 1 hvítlauksgeiri, fínsaxaður

Aðferð

Gremolata

  1. Blandið sítrónuberki, steinselju og hvítlauk saman í skál.

Aðferð

  1. Kryddið skankana með salti, pipar og kryddblöndunni, veltið þeim upp úr hveiti og dustið það sem umfram er af. Hitið helminginn af olíunni í potti eða djúpri pönnu við meðalhita og brúnið kjötið vel á báðum hliðum. Takið það til hliðar.
  2. Setjið afganginn af olíunni í pottinn og mýkið laukinn þar til hann verður glær. Bætið gulrót, sellerí og hvítlauk út í og steikið í 2 mínútur til viðbótar.
  3. Hellið hvítvíninu út í og sjóðið þar til það er nánast gufað upp.
  4. Setjið kjötið aftur í pottinn ásamt tómötunum, tómatmaukinu, soðinu og rósmaríngreinunum. Kryddið með salti og pipar og látið suðuna koma upp.
  5. Lækkið hitann, setjið lok á og látið malla í um 2 klst., þar til kjötið losnar frá beininu og sósan er orðin þykk og bragðmikil.

Athugasemdir

  • Tilvalinn vetrarréttur, góður með rauðvínsglasi.
  • Berið fram á kartöflumús eða rjómakenndri polentu og stráið gremolata yfir.