Marmarakaka
- Frá
- Vallý
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
- 250 g hveiti
- 125 g sykur
- 1 egg
- 2 tsk. lyftiduft
- 2 msk. kakó
- 100 g smjör, mjúkt
- 1 tsk. sítrónusafi
- 2 tsk. kardimommudropar (Ef kardimommudropar fást ekki má nota 1 tsk. steyttar kardimommur.)
- ca. 1½–2 dl mjólk
Aðferð
- Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið aflangt form (jólakökuform) eða hringform.
- Hrærið mjúkt smjörið og sykurinn saman þar til létt og ljóst. Hrærið eggið saman við og síðan sítrónusafann og kardimommudropana.
- Sigtið hveitið og lyftiduftið saman við og blandið saman. Bætið við mjólk (um 1½–2 dl) þar til deigið er mjúkt og lint.
- Takið um þriðjung deigsins frá og hrærið kakóið saman við hann (með smá mjólk ef þarf).
- Setjið ljóst og dökkt deig til skiptis í formið og dragið gaffal í gegnum það til að mynda marmaramynstur.
- Bakið við 180°C í 50–60 mínútur, þar til prjónn sem stungið er í kökuna kemur hreinn út.
Eins og hún skrifaði það

Marmarakaka
(Vallý)
250gr. hveiti — 125gr. sykur — 1 egg
2tsk. lytiduft — 2 msk. kakó
100gr. smjör — 1tsk. sítr. safi
2 tsk. kardim. dropar.
180°c 50-60 min.