Lifrarbuff
Hráefni
- 300 g lifur (Lamba- eða kálfalifur.)
- 300 g kartöflur, hráar, flysjaðar
- 1½ msk. hveiti (má sleppa) (Fyrir ofan stendur „nei“, líklega hefur höfundur hætt að nota hveitið.)
- 1 tsk. salt
- ¼ tsk. pipar
- 2 laukar, stórir (Annar hakkaður með lifrinni, hinn steiktur.)
Aðferð
- Hakkið lifrina, hráu kartöflurnar og annan laukinn saman.
- Saxið hinn laukinn og steikið hann.
- Hrærið öllu hinu saman við (steikta lauknum, salti, pipar og hveitinu ef það er notað).
- Setjið deigið með skeið á heita pönnu með smjöri eða olíu og steikið litla klatta í nokkrar mínútur á hvorri hlið þar til þeir eru steiktir í gegn.
Athugasemdir
- Borið fram með soðnum kartöflum og hrásalati.
Eins og hún skrifaði það

Lifrabuff.
300gr. lifur - 300gr (hrá) Kartöfl
1 1/2 msk. nei hveiti - 1 tsk. salt - 1/4 tsk. pipar
1+1 stórir laukar.
lifur + 1 lauk. hakkað
" 1 lauk. steiktur " Öllu hinu sullað
saman. Búnir til klattar á pönnu
Borið fram með soðnum kart
og hrásalati