Smákökur

Lakkrískurlkökur

Ofnhiti
150 °C

Hráefni

  • 3 eggjahvítur
  • 200 g púðursykur
  • 100 g rjómasúkkulaði, saxað
  • 1 pakki lakkrískurl, stór poki (180 g)

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 150°C og leggið bökunarpappír á ofnplötur.
  2. Þeytið eggjahvíturnar og púðursykurinn vel saman, þar til marengsinn er stífur.
  3. Blandið söxuðu súkkulaðinu og lakkrískurlinu varlega saman við með sleikju.
  4. Setjið litla toppa með teskeið á plöturnar.
  5. Bakið við 150°C í 17 mínútur í miðjum ofni. Passið að baka ekki of lengi.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Lakkrískurlkökur
3 eggjahv. - 200gr. púðurs. > þeytt vel. 100gr. Rjómasúkkul. - 1 stór poki (180gr.) Lakkrískurl
150°c í 17 min. í miðjum ofni (Passa, ekki of lengi).