Meðlæti, sósur og sultur

Kryddsmjör

Hráefni

  • 1 smjörstykki, mjúkt (líklega 250 g)
  • 1 msk. dill
  • 1 dl rjómi
  • 2 msk. Maggi kraftduft
  • nokkrir dropar Tabasco-sósa
  • 2 msk. franskt sinnep
  • 2 msk. tómatsósa
  • 1 msk. sellerísalt
  • 2 msk. Worcestershire-sósa
  • 4 msk. paprika, smátt söxuð

Aðferð

  1. Þeytið allt saman mjög vel.
  2. Kælið. Gott með grilluðu kjöti.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Kryddsmjör
1 stk. smjör — 1 msk. dill 1 dl. Rjómi — 2 msk. Maggi bouillon nokkra dr Tabasco — 2 msk. FR. sinnep 2 msk Tómatsósa — 1 msk. sellerýsalt 2 — Worchestersósa — 4 papr hakkað
allt þeytt mjög vel