Kryddaðar fiskibollur
Hráefni
- 2 laukar, stórir
- 1 kg þorskur, roð- og beinlaus
- 2 tsk. súmak (fékkst í Tyrkneska bazarnum, Síðumúla 17)
- 1 tsk. salt
- 2 rauð chilialdin, smátt söxuð
- 4 msk. steinselja, fersk, söxuð
- vel af olíu til steikingar
Aðferð
- Hakkið laukinn og fiskinn í hakkavél.
- Blandið öllu saman og hrærið vel.
- Kælið farsið í 2 klukkustundir.
- Mótið litlar bollur.
- Steikið bollurnar í vel af olíu við meðalhita þar til þær eru gullinbrúnar og eldaðar í gegn.
Eins og hún skrifaði það

Kryddaðar fiskibollur.
2 stórir lauka - 1kg. þorskur
2 tsk. Sumac (Tyrkn. bazar, Síðumúla 17)
1 tsk. salt - 2 rauð chilli saxað vel
4msk. steinselja fersk-
lauk. + fisk í matvél Hakkavél
öllu bl. saman, hrært vel.
kæla í 2klst. litlar bollur
mótaðar. Nota vel af olíu
steikt v/meðalhita