Kókosbolluterta
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
Botnarnir
- 4 egg
- 125 g sykur
- 125 g súkkulaði, fínsaxað
- ½ tsk. lyftiduft
- 2 kúfuð msk. hveiti (með smá kúf)
Á milli
- 1¼ l rjómi
- 6 kókosbollur (súkkulaðihjúpaðar froðubollur á kexbotni, velt upp úr kókosmjöli)
Aðferð
Botnarnir
- Hitið ofninn í 200°C og smyrjið tvö kringlótt form (um 24 cm) eða klæðið þau bökunarpappír.
- Stífþeytið egg og sykur. Blandið fínsöxuðu súkkulaði, hveiti og lyftidufti varlega saman við.
- Skiptið deiginu í formin og bakið tvo botna við 200°C í um 12–15 mínútur. Látið kólna.
Á milli
- Þeytið rjómann.
- Smyrjið rjóma á neðri botninn og raðið kókosbollunum ofan á, skornum í 3–4 bita.
- Setjið svo rjóma yfir.
- Leggið síðan hinn botninn ofan á.
- Smyrjið rjóma ofan á og raðið kókosbollubotnunum efst.
Eins og hún skrifaði það

Kókosbolluterta
4 egg - 125gr. sykur - 125gr. súkkul.
1/2 tsk. lyftid. - 2 msk. m/smá kúf hveiti
200°C 2 botnar
Á milli: 1 1/4 l. Rjómi + 6 kókosbollur
Rjómi á neðri botn svo bollur í
3-4 pörtum svo Rjómi síðan hinn
botninn -> Rjómi -> kókosbollu-
botnar efst.