Kjötfars
Hráefni
- 500 g lambahakk
- 2 msk. kartöflumjöl
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. hvítur pipar (Strikið er endurtekningarmerki fyrir 'tsk.'.)
- 2 tsk. salt
- 1 tsk. múskat
- 3–4 dl mjólk
Aðferð
- Setjið hakkið og saltið í hrærivélarskál og hrærið þar til hakkið verður seigt.
- Bætið kartöflumjöli, lyftidufti, hvítum pipar og múskati út í og hrærið saman við.
- Hellið mjólkinni út í smátt og smátt og þeytið farsið vel í hrærivélinni þar til það er stíft og létt.
- Mótið bollur með blautri skeið og steikið á pönnu, eða sjóðið, þar til þær eru eldaðar í gegn.
Eins og hún skrifaði það

Kjötfars.
500gr Lambahakk
2 msk. Kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft.
1 - hvítur pipar
2 - salt
1 - múskat
3-4 dl. mjólk
stífþeytt í hrærivél.