Kjötbollur í kókoskarrýsósu
- Heimild
- Fréttablaðið (starri@frettabladid.is); heimild: grgs.is
- Magn
- Fyrir 4–6
Hráefni
Kjötbollurnar
- 3 egg
- 130 g haframjöl
- 60 ml mjólk
- 900 g nautahakk
- 1 msk. engifer, rifið (Á úrklippunni stendur líka 'minched ginger' (sic), þ.e. fínsaxað engifer.)
- 1 msk. rautt karrýmauk
- 2 msk. fiskisósa
- 1 tsk. sykur
- 20 g kóríander, saxaður
- 1½ tsk. salt
- 2 hvítlauksgeirar, pressaður
- 3 vorlaukar, smátt saxaðir
- 2 msk. olía, til steikingar, meira eftir þörfum
Kókoskarrýsósa
- 2 dósir kókosmjólk
- 3 msk. rautt karrýmauk
- ½–1 límóna (lime), aðeins safinn
- salt og pipar, eftir smekk
Aðferð
- Hrærið egg, haframjöl og mjólk saman í skál og leyfið höfrunum að drekka í sig vökvann í um 5 mínútur.
- Setjið hakkið út í ásamt engifer, 1 msk. af karrýmaukinu, fiskisósu, sykri, kóríander, salti, hvítlauk og vorlauk og vinnið allt vel saman.
- Mótið bollur úr deiginu. Brúnið þær í olíu á stórri pönnu, 1–2 mínútur á hvorri hlið, í nokkrum skömmtum ef þarf og bætið við olíu eftir þörfum. Takið bollurnar af pönnunni.
- Setjið kókosmjólkina og 3 msk. af karrýmauki á pönnuna og losið steikarskófirnar af botninum út í sósuna.
- Setjið bollurnar aftur í sósuna og látið malla í um 8 mínútur, þar til þær eru steiktar í gegn.
- Kryddið sósuna með limesafa, salti og pipar.
Athugasemdir
- Dásamlegar kjötbollur undir asískum áhrifum.
- Berið fram með hrísgrjónum.