Meðlæti, sósur og sultur

Karrýgrjón

Ofnhiti
200 °C

Hráefni

  • 2 msk. olía
  • 1 laukur, niðurskorinn
  • 1 bolli hrísgrjón
  • 2 tsk. salt
  • 2½–3 tsk. karrí
  • 2 bollar vatn, sjóðandi

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C. Setjið olíuna í eldfast mót sem þolir hellu (eða pott sem má fara í ofn).
  2. Bætið niðurskornum lauknum út í og mýkið hann í olíunni.
  3. Bætið hrísgrjónunum út í og hitið allt saman í smástund.
  4. Bætið salti og karríi út í og hrærið vel.
  5. Hellið að lokum sjóðandi vatninu yfir.
  6. Setjið lok yfir og látið malla í ofni við 200°C í um hálfa klukkustund.
  7. Hrærið aðeins í grjónunum og berið fram.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Karrýgrjón
2 msk. olía → í eldfast mót 1 lauk. niðurskor. sett úti soðið. 1 b. hrísgrjón sett úti allt soðið í smástund 2 tsk. salt - 2 1/2 -3 tsk. karrý sett úti, hræra vel. Loks eru 2 b. sjóð. vatni hellt yfir. Ofninn settur á 200°C Lok sett yfir. Láta malla í ca. 1/2 klst. Hræra aðeins í og borðað með…