Kökur og tertur

Kanilterta með rjóma

Ofnhiti
225 °C

Hráefni

Botnarnir

  • 4 egg
  • 135 g sykur
  • 3 tsk. kakó
  • 4 tsk. kanill
  • 1 tsk. negull, sléttfull („slf.“ = sléttfull)
  • 75 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft

Aðferð

Botnarnir

  1. Hitið ofninn í 225°C. Smyrjið 3–4 kringlótt form eða klæðið þau bökunarpappír.
  2. Stífþeytið egg og sykur.
  3. Sigtið hveiti, lyftiduft, kakó, kanil og negul saman og blandið varlega saman við eggjahræruna.
  4. Skiptið deiginu í formin og bakið 3–4 þunna botna.
  5. Bakið við 225°C í um 8–10 mínútur.
  6. Látið botnana kólna smástund í formunum, takið þá úr og látið kólna alveg.

Rjóminn

  1. Þeytið rjóma (t.d. um ½ l) og setjið hann á milli botnanna og ofan á.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Kanilterta m/rjóma
4egg — 135gr. sykur — 3tsk. kakó 4tsk. kanill — 1slf. tsk. negull 75gr. hveiti — 1tsk. lyftid.
Stífþ. egg + sykur ⇒ bl. öllu varl. sm. Baka 3-4 þunna botna 225°c ca. 8-10min. Láta kólna smástund í forminu.