Kökur og tertur

Jarðarberjaterta

Frá
Dagný
Ofnhiti
175 °C

Hráefni

Botnar

  • 4 egg
  • 100 g sykur
  • 2 msk. hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 100 g súkkulaði, saxað
  • 100 g hnetur, saxaðar

Fylling og skreyting

  • jarðarberjasafi
  • rjómi, þeyttur
  • jarðarber, marin
  • marsípan, flatt út
  • ber

Aðferð

Botnar

  1. Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið tvö kringlótt form, um 24 cm, og leggið bökunarpappír í botninn.
  2. Þeytið egg og sykur þar til blandan er mjög þykk og ljós.
  3. Blandið hveiti og lyftidufti saman við saxað súkkulaðið og hneturnar og blandið varlega saman við eggjablönduna. Skiptið í formin.
  4. Bakið við 175°C í um 20–25 mínútur á neðstu rim. Látið botnana kólna.

Fylling og skreyting

  1. Bleytið botnana með jarðarberjasafa.
  2. Setjið þeyttan rjóma og marin jarðarber á milli botnanna.
  3. Leggið útflatt marsípan ofan á.
  4. Sprautið rjóma upp með hliðunum og toppum ofan á, og skreytið með berjum.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Jarðaberjaterta
(Dagný)
4 egg - 100 gr. sykur - 2 msk. hveiti 1 tsk. lyftid. - 100 gr. súkkul. 100 gr. hnetur.
175°C í ca. 20-25 min. Neðsta rim Bleyta botnana með jarðab. safa Rjómi + marin jarðab. sett á milli. Marsipan ofan á. Rjóma sprautað upp m/hliðum + Toppa ofan á + ber