Eftirréttir

Ís

Frá
Heiðar Örn

Hráefni

  • 3 eggjarauður
  • 3 msk. sykur
  • 1 vanillustöng
  • 1 bolli rjómi
  • pínulítið salt

Aðferð

  1. Kljúfið vanillustöngina, skafið fræin úr og blandið þeim saman við sykurinn.
  2. Hitið rjómann vel ásamt vanillusykrinum, saltinu og vanillustönginni.
  3. Þeytið eggjarauðurnar, en ekki of mikið.
  4. Hellið heitri rjómablöndunni varlega saman við rauðurnar og þeytið á hálfum hraða á meðan.
  5. Hitið blönduna aftur við meðalhita (á 6 á hellunni) og hrærið vel á meðan hún þykknar. Látið hana ekki sjóða.
  6. Takið vanillustöngina úr, kælið blönduna, setjið hana í ísform og frystið.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Ís — Heiðar Örn.
3 eggjarauður — 3 msk. sykur 1 vanillustöng — 1 L. Rjómi — pínu salt
Hita vel Rjóma + sykur + salt + vanillastöng. (klofin og bl. sm. við sykur. Þeyta Rauður (ekki of mikið) hella heitri soppunni varl. sm. við Rauðurnar, þeyta 1/2 hraða á meðan. (Hita v/6 hræra vel á meðan soppan þykknar) Kæla, setja í ísform, Frysta