Hvítlaukur í ofni og olía
Hún merkti uppskriftina með stjörnu
- Ofnhiti
- 190 °C
Hráefni
- hvítlauksgeirar, afhýddir (síðast notaði hún 5 stóra hvítlauka)
- góð olía (nóg til að fljóti yfir)
Aðferð
- Raðið afhýddum hvítlauksgeirum í eldfast mót.
- Hellið góðri olíu yfir þannig að hún fljóti yfir geirana.
- Setjið álpappír yfir mótið.
- Bakið við 190°C í 40–50 mínútur á neðstu rim.
- Maukið geirana saman við olíuna og frystið í klakaboxum.
Athugasemdir
- Síðast notaði ég 5 stóra hvítlauka og setti alla geirana í mótið.
- Hvítlauk í olíu á að geyma í frysti eða í mesta lagi nokkra daga í ísskáp, aldrei við stofuhita.
Eins og hún skrifaði það

* Hvítlaukur (í ofni) + olía
Raða hvítlauksgeirum í
eldfast mót, hella góðri
olíu yfir svo hún fljóti
yfir. Álpappír yfir.
190°C í 40-50 min.
mest neðstu rim. (Síðast
notaði ég 5 stóra og setti alla geir.
í mótið. Nota svo olíu + mix. geir. + olíu! → og frysti í Klakamót